Kleo Invest
  • Heim
  • Fræðsluefni
  • Námskeið
  • Ókeypis verkfæri
  • Um okkur
Kleo Invest

© 2026 Kleo Invest

PersónuverndSkilmálar
Til baka í fræðsluefni
SparnaðurAlmenn fjármálByrjendur

Hvað þýðir eiginlega verðtryggt og óverðtryggt?

K
Kleo Invest2 mín lestur

Síðast uppfært: 24.08.2026

Það er óþolandi að reyna að muna þetta, en hérna færðu einfalda útskýringu á verðtryggðu vs. óverðtryggðu!

Hvað þýðir eiginlega „verðtryggt“ og „óverðtryggt“? Það er auðvelt að ruglast á þessum orðum, en það er til ein einföld regla til að skilja muninn: Gullna reglan: Allt sem heitir verðtryggt er beintengt við verðbólguna. Þegar verðbólgan hækkar, þá bætist hún ofan á upphæðina þína. Það getur verið auðvelt að muna bara verðtryggt=verðbólga Skoðum þetta með einföldu dæmi um bankareikninga. Ímyndum okkur að verðbólgan í landinu sé 5%. Óverðtryggður reikningur ber 6% vexti en verðtryggður reikningur 1,5% vexti. *1. Óverðtryggður reikningur (Bara vextir, engin verðbólga bætist við)* Hér skiptir verðbólgan engu máli og þú færð bara vextina. Þú setur 10.000 krónur inn á reikning. Bankinn gefur þér 6% vexti á upphæðina yfir árið þannig að eftir árið átt þú þínar 10.000 krónur plús vextina. Niðurstaðan eftir árið: Þú átt 10.600 krónur. *2. Verðtryggður reikningur (Verðbólgan bætist við!)* Hér mætir verðbólgan á svæðið og breytir upphæðinni. Þú sérð að vextir á verðtryggða reikningnum eru miklu lægri eða um 1,5% þannig að þú hugsar að sjálfsögðu að það sé verra en óverðtryggði kosturinn sem ber 6% vexti. En vegna þess að reikningurinn er verðtryggður, þá bætist verðbólgan (5%) ofan á vextina sem reikningurinn ber. Þannig að í raun lítur ávöxtunin svona út: Verðbólga: 5% Vextir: 1,5% Ávöxtun reikningsins: 6,5% Þú setur 10.000 krónur inn á reikninginn: Fyrst bætist verðbólgan við: Vegna þess að reikningurinn er verðtryggður, þá bætast 5% (500 krónur) ofan á tíu þúsund kallinn þinn svo hann tapi ekki verðgildi sínu. Upphæðin fer upp í 10.500 krónur. Svo bætast vextirnir við: Bankinn reiknar svo 1,5% vexti ofan á þessa nýju upphæð (sem gerir um 158 krónur). Niðurstaða eftir árið: Þú átt tæpar 10.658 krónur. Í stuttu máli: Upphæðin þín ávaxtaðist bæði af því að allt úti í búð varð dýrara útaf verðbólgu (Það kallast verðtrygging) og af því að bankinn borgaði þér fyrir að geyma peningana (vextirnir). Einföld leið til að muna þetta: Óverðtryggt = „Vextirnir bara“. Engin verðbólga bætist við peninginn. Verðtryggt = „Bættu verðbólgunni ofan á vextina“. Peningurinn vex í takt við hvað hlutirnir hækka mikið úti í búð. Sama gildir um lán: Ef þú tekur verðtryggt lán, þá bætist verðbólgan líka ofan á lánið þitt – sem þýðir að höfuðstóll lánsins hækkar ef verðbólga hækkar. Það gerist ekki á óverðtryggðu láni en þar eru vextirnir miklu hærri, en það blekkir ef fólk veit ekki að verðbólgan bætist ofan á verðtryggðu lánin. Það getur verið ansi sterkur leikur að vera með verðtryggðan sparnaðarreikning ef verðbólgan í landinu er há en að sama skapi getur verið ansi slæmt að vera með verðtryggt lán í sömu aðstæðum.

Þessi grein er fræðsluefni en ekki fjárfestingarráðgjöf. Kleo Invest veitir ekki persónulega ráðgjöf um einstakar fjárfestingar. Fjárfestingum fylgir alltaf áhætta og fyrri ávöxtun er ekki ávísun á framtíðarávöxtun.

Viltu læra þetta almennilega?

Byrjendanámskeiðið fer í gegnum þetta allt — skref fyrir skref.

Skoða námskeiðið

Fleiri greinar

Byrjendur

Hvað er ETF sjóður

Í þessari stuttu grein ætlum við að sleppa flóknum fjármálaorðum og útskýra á mjög einfaldan hátt hvað ETF er, og hvernig þú getur byrjað að fjárfesta í þannig sjóðum frá Íslandi.

3 mín lestur
Byrjendur

Áhættuþol og tímabil — hvað hentar þér?

Aldur, markmið og taugarnar — þrír þættir sem hjálpa þér að byggja fjárfestingasafn sem henta þínum markmiðum.

2 mín lestur
Sjóðir

Hvernig á að velja sér fyrsta sjóðinn

Í þessari grein er farið yfir 5 atriði sem mikilvægt er að skoða þegar maður velur sér íslenskan sjóð til að fjárfesta í.

4 mín lestur