← Fræðsluefni

Byrjendur · Sjóðir

Hvað er ETF sjóður

Í þessari stuttu grein ætlum við að sleppa flóknum fjármálaorðum og útskýra á mjög einfaldan hátt hvað ETF er, og hvernig þú getur byrjað að fjárfesta í þannig sjóðum frá Íslandi.

Hefur þú heyrt fólk tala um ETF sjóði og liðið eins og það væri að tala framandi tungumál? Ekki hafa áhyggjur. Þetta er miklu einfaldara en það hljómar. Og við ætlum að útskýra það á mjög einfaldan hátt! **Hvað er ETF sjóður? **ETF sjóður er kauphallarsjóður og kallast á ensku Exchange-Traded Fund. Það þýðir að sjóðurinn er seldur á kauphöllum eins og stakt hlutabréf og verðið á sjóðnum fylgir framboði og eftirspurn sjóðsins í kauphöllinni. Venjulegir sjóðir eins og við íslensdingar getum keypt í bönkunum virka aðeins öðruvísi en þar er verð sjóðsins reiknað daglega og fylgir það dagshreifingu allra eigna innan sjóðsins. Að öðru leiti virka venjulegir sjóðir og ETF sjóð mjög svipað þar sem þeir innihalda báðir safn af mörgum eignum eins og blöndu af hlutabréfum og skuldabréfum. **__Fyrir ofureinfalda útskýringu á sjóðum getum við tekið dæmi: __**Hugsaðu um dæmigerða fjárfestingu eins og að kaupa eitt epli. Ef þú kaupir hlutabréf í einu fyrirtæki (til dæmis Apple eða Marel) ertu með eitt epli í hendinni. Ef það epli skemmist, áttu ekkert eftir. ETF (Exchange-Traded Fund) er aftur á móti eins og stór ávaxtakarfa. Þó að eitt epli í körfunni skemmist þá taparðu bara einu epli en átt fjölmörg eftir í körfunni í stað þess að tapa öllu ef þú hefðir bara keypt þér eitt epli. Það er eins með ETF sjóðinn, ef eitt bréf í sjóðnum hrynur svakalega, þá kannski hækka fjölmörg á móti og ávöxtunin þín jafnast því miklu betur út og þú þarft að taka minni áhættu en ef þú kaupir bara stakt bréf. Þegar þú kaupir einn hlut í ETF sjóði, ertu í raun að kaupa örlítinn bita af hundruðum eða þúsundum mismunandi fyrirtækja í einu. Sumir ETF sjóðir fylgja 500 stærstu fyrirtækjum í Bandaríkjunum (eins og S&P 500) eða ákveðnum vísitölum eins og OMXI15 á íslandi. Aðrir fylgja tæknifyrirtækjum, orkufyrirtækjum eða jafnvel gulli og það getur verið góð leið að kaupa reglulega í nokkrum mis áhættumiklum sjóðum. Af hverju er þetta sniðugt? Vegna þess að þú ert ekki að veðja á einn hest. Ef einu fyrirtæki gengur illa í körfunni, þá ganga hinum oft vel, sem jafnar út áhættuna þína. Þetta er kallað að dreifa áhættunni. Einnig eru gjöldin í ETF sjóðum oft margfalt lægri en í venjulegum sjóðum og þetta getur skipt miklu máli til langs tíma litið og getur því oft verið hagstæðara að kaupa í ETF sjóði en venjulegum sjóði. Af hverju ætti ég að velja ETF? Það er ódýrt: Það kostar yfirleitt örfáar krónur í umsýslugjöld að eiga þá, ólíkt mörgum hefðbundnum bankasjóðum. Það er einfalt: Þú þarft ekki að fylgjast með fréttum af hlutabréfamörkuðum á hverjum degi. Þú kaupir og lætur sjóðinn vinna fyrir þig til langs tíma. Þú byrjar smátt: Þú þarft ekki að vera rík(ur) til að byrja. Þú getur keypt fyrir nokkra þúsundkalla á mánuði. **Hvernig get ég (á Íslandi) fjárfest í ETF? **Hér eru algengustu leiðirnar sem Íslendingar nota: Íslensku bankarnir: Þú getur opnað vörslusafn í appinu hjá þínum viðskiptabanka (Íslandsbanki eða Landsbankinn) og keypt ETF þar. Bankarnir bjóða uppá ekki uppá marga ETF sjóði en Íslandsbanki býður uppá Vanguard sjóðina og Landsbankinn er með Ucits sjóði. Það er einfalt og þægilegt að gera þetta í gegnum íslensku bankana en gjöldin geta verið aðeins hærri en erlendis. Erlend öpp: Margir Íslendingar nota öpp eins og Trading 212, eToro eða Interactive Brokers. Þessi öpp eru hönnuð fyrir byrjendur, gjöldin eru mjög lág (oft engin) en það þarf að millifæra inn á þau reglulega sem getur líka verið dýrt því erlendar millifærslur eru dýrar hjá íslensku bönkunum. Ekkert í þessari grein er fjárfestingaráðgjöf og er eingöngu ætlað sem fræðsluefni.