Fjárfestingar þurfa ekki að vera flóknar.
Kleo Invest er námsvefur sem kennir fólki að fjárfesta á einfaldan hátt á erlendum og innlendum mörkuðum.

Anna Lilja Malmquist
Kleo Invest var stofnað af Önnu Lilju Malmquist með það að markmiði að efla fjárhagslegt sjálfstæði Íslendinga og gera fjárfestingar aðgengilegri öllum. Anna Lilja er menntaður viðskiptafræðingur og hefur yfir 25 ára reynslu af fjárfestingum á öllum mörkuðum, má þar nefna erlenda og innlenda markaði, fjárfestingar í óskráðum félögum og rafmyntamarkaði.
Af hverju heitir þetta Kleo Invest?
Nafnið Kleo Invest er innblásið af Kleópötru, síðasta faró Egyptalands, en hún var oft nefnd fyrsti fjárfestir sögunnar.
Þegar Kleopatra tók við völdum í Egyptalandi stóð ríkið frammi fyrir miklum fjárhagslegum og pólitískum áskorunum. Með framsýni, seiglu og sterkri fjármálastjórn tókst henni að viðhalda stöðugleika og velmegun ríkisins um árabil. Saga hennar minnir okkur á mikilvægi þekkingar, sjálfstæðrar hugsunar og getu til að taka skynsamlegar ákvarðanir þegar mest reynir á. og þess vegna varð Kleópatra innblásturinn að nafni fyrirtækisins.
Þrennt sem við byggjum á
Vald
Við viljum færa fólki þau verkfæri og þá þekkingu sem þarf til að taka stjórn á eigin fjárhagslegri framtíð.
Sjálfstæði
Frelsi til að velja, frelsi til að skapa og frelsi til að lifa lífinu á eigin forsendum.
Jafnrétti
Allir eiga að hafa aðgang að sömu grunnþekkingu og tækifærum til að byggja upp eignir, óháð bakgrunni eða reynslu.
Þú þarft ekki háskólagráðu til að ávaxta peninginn þinn
En þú þarft þekkinguna. Markmið okkar er að gera fjármálaheiminn skiljanlegri, aðgengilegri og opnari fyrir alla sem vilja byggja upp sterkari fjárhagslega framtíð og vilja læra að fjárfesta eftir sínum eigin gildum.
Síðast uppfært: 18.10.2026