Námskeið

Lærðu að fjárfesta. Á íslensku!

Stutt og praktísk námskeið sem kenna þér að fjárfesta af öryggi á öllum helstu mörkuðum.

Engin fyrri þekkingÁ þínum hraðaVinnublöð fylgja
Kemur í haust

Fjárfestinganámskeið — Byrjaðu að fjárfesta

Skoða efnisyfirlit námskeiðsins →

Í þessu námskeiði lærirðu að fjárfesta á innlendum og erlendum markaði af öryggi. Allt útskýrt á mannamáli.

8 lotur3 klstÁ íslensku
Þetta lærir þú
01Af hverju að fjárfesta — og í hverju er hægt að fjárfesta?
02Hlutabréf, sjóðir og skuldabréf — útskýrt á mannamáli
03Hvar þú fjárfestir á erlendum og innlendum mörkuðum.
04Í hverju áttu að fjárfesta, eftir þínum markmiðum.
05Hvernig áttu að skrá fjárfestingarnar í skattaskýrsluna.
06Fyrsta fjárfestingin — skref fyrir skref
18.990 kr/ námskeið
Eingreiðsla — ótakmarkaður aðgangur eftir kaup.
Engin skuldbinding · Þú getur skráð þig af hvenær sem er
  • Þau sem eru á listanum fá aðgang fyrst
  • Vinnublöð og gátlistar fylgja hverri lotu
  • Horfðu þegar þér hentar, á þínum hraða
Fyrir hvern

Þetta er fyrir þig ef…

Þú hefur aldrei fjárfest áður

Og veist ekki hvar á að byrja — eða hefur haldið að þetta sé ekki fyrir þig.

Þú ert byrjuð/aður en ert óviss

Þú ert byrjaður að fjárfesta en veist ekki hvort þú sért að gera rétt, eða hvað þú átt að vera að skoða og fylgjast með.

Vilt læra að fjárfesta af öryggi

Þú vilt ekki bara kunna að fjárfesta, þú vilt vita hvað þú ætlar að kaupa þér og hvers vegna.

Á leiðinni

Fleiri námskeið í þróun

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita þegar þau opna.

Í þróun

Greining fjárfestinga

6 lotur · 2,5 klst · Á íslensku

Fyrir þau sem kunna grunninn og vilja læra að meta fyrirtæki á nokkra vegu. Í námskeiðinu verður farið yfir helstu kennitölur sem er gott að vita þegar þú ert að meta hvort þetta sé góð fjárfesting, hvaða síður er gott að leita af þessum upplýsingum. Einnig verður farið yfir grunnatriðin í tæknigreiningu þar sem við skoðum TradingView og lærum nokkrar aðferðir til að sjá hvort verðið sé hátt eða lágt.

Láta vita þegar opnar →
Í þróun

Skattalegir hlutar fjárfestinga

4 lotur · 90 mín · Á íslensku

Í þessu námskeiði er farið yfir hvernig þú telur fram erlendar fjárfestingar rétt á skattaskýrslunni — hvaða skattareglur gilda um mismunandi tegundir fjárfestingar. - Tilbúið skjal til útfyllingar fylgir sem auðveldar þér innskil á skattaskýrslunni. - Skattaskýrslan útskýrð og sýnt hvernig á að fylla hana út. Þetta námskeið hjálpar þér að halda utan um fjárfestingarnar þínar á einum stað og kennir þér að fylla skattaskýrsluna út á fljótlegan hátt.

Láta vita þegar opnar →
Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þarf ég að kunna eitthvað fyrir?

Nei. Byrjendanámskeiðið gerir ráð fyrir engri fyrri þekkingu — við byrjum á grunnhugtökunum og útskýrum hvert einasta orð sem gæti verið nýtt fyrir þér.

Hvenær opnar námskeiðið?

Byrjendanámskeiðið kemur í haust. Þau sem eru á póstlistanum fá tilkynningu fyrst og geta tryggt sér pláss áður en það er opnað öðrum.

Get ég farið í gegnum efnið á mínum hraða?

Já. Námskeiðið er í upptökum sem þú horfir á þegar þér hentar, og þú hefur aðgang eftir kaup án tímamarka.

Er þetta fjármálaráðgjöf?

Nei — þetta er fræðsluefni. Kleo kennir þér hvernig fjárfestingar virka svo þú getir tekið þínar eigin ákvarðanir, en veitir ekki persónulega ráðgjöf um hvað þú átt að kaupa.

Vertu fyrst/ur til að vita

Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningu um leið og námskeiðin opna.

Efnið er fræðsla, ekki fjárfestingarráðgjöf.

Síðast uppfært: 24.08.2026