Fræðsla & námskeið

Kleo Invest – Lærðu að fjárfesta á einfaldan hátt

Kleo Invest er námsvefur sem kennir fólki að fjárfesta á einfaldan hátt á erlendum og innlendum mörkuðum.

Fáðu fréttir af nýju efni hjá Kleo Invest — enginn ruslpóstur.

Um Kleo Invest

Kleo Invest er námsvefur sem kennir fólki að fjárfesta á einfaldan hátt á erlendum og innlendum mörkuðum.

Efnið er fyrir byrjendur og þá sem vilja dýpka þekkingu sína á fjárfestingum. Hér lærir þú um hlutabréf, sjóði, áhættu og skattamál með greinum, námskeiðum og hagnýtum verkfærum.

Kleo Invest var stofnað af Önnu Lilju Malmquist með það að markmiði að efla fjárhagslegt sjálfstæði Íslendinga.

Byrjaðu hér

Veldu þína leið

Fræðsluefni

Hér getur þú lesið gagnlegar greinar um fjárfestingar – á mannamáli.

Skoða greinar →

Námskeið

Stutt og praktísk námskeið sem kenna þér grunnatriði fjárfestinga, skref fyrir skref.

Skoða námskeið →
Væntanlegt

Fyrstu námskeiðin

Kemur í haust

Fjárfestinganámskeið — Byrjaðu að fjárfesta

8 lotur · 3 klst · Á íslensku
Í þróun

Greining fjárfestinga

6 lotur · 2,5 klst · Á íslensku
Í þróun

Skattalegir hlutar fjárfestinga

4 lotur · 90 mín · Á íslensku

Fyrir hvað stendur Kleo Invest

Vald

Við viljum færa fólki þau verkfæri og þá þekkingu sem þarf til að taka stjórn á eigin fjárhagslegri framtíð.

Sjálfstæði

Frelsi til að velja, frelsi til að skapa og frelsi til að lifa lífinu á eigin forsendum.

Jafnrétti

Allir eiga að hafa aðgang að sömu grunnþekkingu og tækifærum til að byggja upp eignir, óháð bakgrunni eða reynslu.

Lesa meira um Kleo Invest →

Algengar spurningar um Kleo Invest

Hvað er Kleo Invest?

Kleo Invest er námsvefur sem kennir fólki að fjárfesta á einfaldan hátt á erlendum og innlendum mörkuðum. Á vefnum finnur þú fræðslugreinar, námskeið og ókeypis verkfæri sem hjálpa þér að skilja fjármál og fjárfestingar. Efnið er fræðsla, ekki fjárfestingarráðgjöf.

Fyrir hverja er námsvefurinn?

Kleo Invest er fyrir fólk sem vill skilja fjárfestingar, hvort sem það er að byrja eða hefur þegar reynslu. Efnið er á íslensku og útskýrir hugtök á mannamáli. Þú getur valið greinar og námskeið eftir þekkingu þinni og áhugasviði.

Hvernig get ég byrjað að fjárfesta ef ég veit ekkert?

Byrjaðu á að læra grunnhugtök um sparnað, áhættu, hlutabréf og sjóði áður en þú ákveður að fjárfesta. Hjá Kleo Invest geturðu lesið byrjendagreinar og kynnt þér byrjendanámskeiðið. Skoðaðu eigin fjárhag og markmið og mundu að fjárfestingar geta lækkað í verði.

Hvaða markaðir eru teknir fyrir í fræðslunni?

Fræðsla Kleo Invest tekur fyrir fjárfestingar á erlendum og innlendum mörkuðum. Fjallað er um hlutabréf, sjóði og önnur fjárfestingarhugtök með áherslu á skilning á áhættu og langtímahugsun. Efnisyfirlit hverrar greinar og námskeiðs segir nánar frá því sem er tekið fyrir.

Er Kleo Invest fjárfestingarráðgjöf?

Efnið er fræðsla, ekki fjárfestingarráðgjöf. Kleo Invest veitir ekki persónulegar ráðleggingar um kaup eða sölu tiltekinna fjárfestinga. Þú berð ábyrgð á eigin ákvörðunum og getur leitað til viðeigandi ráðgjafa þegar þörf er á.

Hvernig skila ég skattframtali vegna erlendra hlutabréfa og hversu mikill er skatturinn?

Á Íslandi greiðir þú 22% fjármagnstekjuskatt af innleystum söluhagnaði þegar þú selur erlend hlutabréf eða sjóði með hagnaði. Hagnaðurinn er söluverð, að frádregnum beinum sölukostnaði, að frádregnu kaupverði. Óinnleystur hagnaður er ekki skattlagður fyrr en þú selur. Hver einstaklingur á 300.000 kr. frítekjumark á ári (600.000 kr. hjá hjónum) sem gildir samtals fyrir vexti, arð og söluhagnað af hlutabréfum félaga sem eru skráð á skipulegan verðbréfamarkað. Tap af sölu hlutabréfa má draga frá hagnaði af sölu annarra hlutabréfa sama ár. Söluhagnaðinn skráir þú í skattframtalið á skattur.is, í kaflann um söluhagnað hlutabréfa, eins og aðrar fjárfestingar. Þú þarft að eiga gögn um kaupverð, söluverð og kostnað, og ókeypis Fjárfestingayfirlitið okkar á verkfærasíðunni hjálpar þér að halda utan um fjárfestingarnar þínar, hagnað og tap á einum stað. Efnið er fræðsla, ekki skattaráðgjöf. Leitaðu til Skattsins eða ráðgjafa ef þú ert í vafa.

Hvar finn ég ókeypis verkfæri frá Kleo Invest?

Á síðunni Ókeypis verkfæri hjá Kleo Invest finnur þú reiknivélar og skjöl til að skoða sparnað, eignastöðu og fjárfestingar. Hvert verkfæri er með eigin lýsingu og tengli. Útreikningar byggja á þeim forsendum sem þú setur inn og eru ekki loforð um framtíðarávöxtun.

Efnið er fræðsla, ekki fjárfestingarráðgjöf.

Margt er á döfinni

Skráðu þig á póstlistann og fáðu fréttir af nýju efni og námskeiðum hjá Kleo Invest.