NotendaskilmálarKleo Invest

Velkomin(n) á Kleo Invest. Með því að nota þessa vefsíðu samþykkir þú að hlíta eftirfarandi skilmálum.

1. Almennt

Vefsíðan Kleo Invest er rekin af Kleo Invest. Skilmálar þessir gilda um alla notkun á vefnum og þá þjónustu eða fræðslu sem þar er í boði.

2. Mikilvægur fyrirvari (Ekki fjárfestingaráðgjöf)

Allt efni á vefsvæði Kleo Invest, þar á meðal greinar, námskeið, rafbækur, myndbönd og fréttabréf, er eingöngu ætlað til fræðslu og upplýsingar.

Kleo Invest veitir ekki persónulega fjárfestingaráðgjöf eða einstaklingsbundna fjármálaráðgjöf.

Ákvarðanir sem notendur taka byggðar á upplýsingum frá Kleo Invest eru alfarið á eigin ábyrgð notandans. Fjárfestingum fylgir áhætta og saga um ávöxtun tryggir ekki árangur í framtíðinni. Notendur eru hvattir til að leita til löggiltra fjármálafyrirtækja eða ráðgjafa áður en stórar fjárhagslegar ákvarðanir eru teknar.

3. Hugverkaréttur

Allt efni á síðunni, þar með talið texti, hönnun, lógó, grafík og fræðsluefni, er eign Kleo Invest og varið höfundarrétti. Óheimilt er að afrita, dreifa, selja eða endurnýta efni síðunnar í hagnaðarskyni án skriflegs leyfis frá Kleo Invest.

4. Breytingar á skilmálum

Kleo Invest áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er án fyrirvara. Breytingar taka gildi jafnskótt og þær eru birtar á vefnum.

5. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna notkunar á síðunni skal þeim ágreiningi vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.